Jæja, ég held ég þurfi að
fara að taka mig alvarlega mikið á í að blogga....haldiði það ekki
?
En já ég sit hérna í félagsfræði með hana Fjólu á
vinstri hönd og hún var eitthvað að væla um að ég bloggaði þar sem
ég held að hún sé eina manneskjan sem skoðar þessa síðu eitthvað að
viti þá neyðist ég til að taka þessa athugsemd hennar 
En ætla hér aðeins að tala um Pendulum tónleikana
sem voru á miðvikudaginn. En þetta voru einir leiðinlegustu
tónleikum sem ég hef á ævi minni farið á og ég hefði alveg eins
geta brennt 2000 kallinn minn og skemmt mér meira við að horfa á
hann fuðra upp en að vera á þessum tónleikum. Reyndar hitti ég hann
Aron frænda minn sem var að vinna sem dyravörður á
staðnum.
Fór með Önnu og Söru á þessa
tónleika og í örvæntingu okkar hringdum við í hann Sindra og
ætluðum að athuga hvort hann gæti bjargað okkur en þar sem hann var
á Hellu þá fór það í vaskin og endaði á því að mamma hennar Önnu
sótti okkur og við fórum heim til Söru. Svo komu Beta og Jónsi sem
voru líka á tónleikunum en fóru seinna heim en við, þau komu líka
til Söru en komust ekki inn fyrir dyr því við ýttum þeim strax út
og létum Jónsa skutla okkur að kaupa nammi og það heilan helling af
nammi 
Svo kom Sindri til Söru líka og
það var bara rosa gaman en svo var mér bara skutlað heim þegar þau
ákváðu að fara út en þá var Anna líka farin en...við verðum að fara
að hittast....ég mæli með því að við hittumst í kvöld og förum
kannski að gera eitthvað skemmtilegt eins og t.d.
Party og Co. eða í bíó....en það
skiptir ekki öllu máli 
En ég nenni þessu eiginlega ekki lengur er að
pæla í að hætta þessu bara núna 
See you babes !
Hadda utibody
:*